GlobeNewswire by notified

Iceland Seafood International hf: Q1 2026 Uppgjör og fjárfestakynning

27.5.2026 18:45:00 CEST | GlobeNewswire by notified | Press release

Share

Mikill afkomubati: Rúmlega tvöföldun hagnaðar eftir skatta  

  • Rekstrartekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 námu 21,2 milljörðum ISK: (€146.0m), sem er aukning um 22,4% frá sama ársfjórðungi 2025 
  • Framlegð fyrir Q1 2026 er 1,9 milljarðar ISK (€13.2m) samanborið við 1,8 milljarða (€12.4m) á Q1 2025 
  • EBITDA fyrir Q1 2026 hækkaði í 833 milljónir (€5.7m) úr 787 milljónum (€5.4m) í Q1 2025 
  • 12 mánaða rúllandi EBITDA hækkaði um 0,4 milljarða, í 3,3 milljarða (€22,8) frá 2,9 milljörðum (€20.0m) á Q1 2025 
  • Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi er 478 milljónir ISK (€3.3m) samanborinn við 334 milljónir ISK (€2.3m) Q1 2025, sem er aukning um 144 milljónir ISK (€1m)   
  • Hagnaður fjórðungsins eftir skatta er 305 milljónir ISK (€2.1m) samanborinn við 145 milljónir (€1.0m) fyrir sama tímabil 2025 
  • Hagnaður á hlut fyrir Q1 2026 er 10 ISK, samanborið við 4,7 ISK fyrir Q1 2025. 
  • Heildareignir námu 42,5 milljörðum ISK (€292.8m) í lok mars 2026, sem er hækkun um 5,3 milljarða ISK (€36.6m) frá lok mars 2025 
  • Eiginfjárhlutfall er 29% í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 samanborið við 29,9% í lok Q1 2025 
  • Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi 2026 verður samkvæmt afkomuspá, 1,7 – 2 milljarðar ISK (€11.5m - €13.5m) 

Rekstrartekjur starfseminnar í Suður-Evrópu voru 8,9 milljarðar ISK (€61.1m) á fyrsta ársfjórðungi, sem er 7% aukning miðað við sama tímabil árið 2025. Reglulegur hagnaður starfseminnar fyrir skatta nam 435 milljónum ISK (€3m), sem er aukning um 103 milljónir ISK (€0.7m) frá fyrsta ársfjórðungi 2025.    

Rekstrartekjur starfseminnar í Norður-Evrópu voru 2,3 milljarðar ISK (€16.1m), sem er 12% aukning frá fyrsta ársfjórðungi árið áður. Verð á laxi var lægra en reiknað var með í byrjun árs og framboð á laxi hefur verið gott.  Verð á hvítfiski  hefur aftur á móti verið mjög hátt og framboð af skornum skammti. Var staða í laxi og hvítfiski sambærileg við fyrra ár. Félagið á Írlandi skilaði 16 milljóna ISK (€107k) hagnaði af reglulegri starfsemi sem er aukning um 5 milljónir ISK (€32k) frá fyrsta ársfjórðungi 2025. Samkvæmt spám um verð og framboð má reikna með að laxaverð haldist stöðugt og í ætt við síðasta ár.  

Rekstrartekjur sölu- og dreifingarhluta starfseminnar voru 10,5 milljarðar ISK (€72.2m) á fyrsta ársfjórðungi, sem er 41% aukning frá sama ársfjórðungi 2025. Hagnaður er svipaður og sama tímabil 2025.  Mikil eftirspurn, há söluverð á þorski og hvítfisktegundum og aukið framboð og góð sala á loðnu og síld voru lykillinn að söluaukningu. 

Byggt á niðurstöðum fyrsta ársfjórðungs og áætlunum félagsins er afkomuspá ársins óbreytt frá ársbyrjun eða á bilinu 11,5 til 13,5 milljónir evra. Gert er ráð fyrir áframhaldandi háu þorskverði á árinu þar sem framboð er í sögulegu lágmarki. Uppfærðar spár um laxaverð fyrir árið gera ráð fyrir að laxaverð verði svipað og á árinu 2025.  Óvissa um ástandið í alþjóðastjórnmálum er mikil og óútreiknanleg og hefur orðið til þess að nú sjást merki um hærri verðbólgu á okkar lykilmörkuðum.  

Ægir Páll Friðbertsson, CEO

“Niðurstaða fyrsta ársfjórðungs er afar ánægjuleg. Við höfum náð að halda sjó í krefjandi umhverfi en minnkandi þorskkvóti á heimsvísu hefur leitt til þess að framboð er mun minna en undanfarin ár.  Allar deildir fyrirtækisins juku sölu samanborið við sama tímabil árið 2025. Þetta styrkir okkur fyrir áframhaldandi starfsemi á árinu. Góð loðnuvertíð hafði einnig jákvæð áhrif á fjórðunginn, sem og góð sala á síld. 

Horfur fyrir næstu mánuði gera ráð fyrir að framboð á þorski verði áfram takmarkað, á meðan laxamarkaðurinn mun líklega einkennas”t af verðnæmni, með stöðugra verði og góðu framboði. Til að styrkja okkur í aðfangakeðjunni fyrir argentínska rækju fjárfestum við í útgerð í Argentínu á síðasta ári en áhrif þeirrar fjárfestingar mun birtast á seinni hluta ársins. 

Félagið lauk fullri endurfjármögnun á síðasta ári, sem hefur skapað aukið svigrúm til að einbeita sér að því að treysta aðfangakeðjuna, bæta fjárhagslegt skipulag, lækka vaxtakostnað og halda áfram markvissri framfylgni á stefnu félagsins. Unnið er að sölu fasteignarinnar í Grimsby og þar með lokun rekstrar í Bretlandi, en leigutekjur eru eini eftirstandandi rekstrarþátturinn þar eftir sölu rekstrarins haustið 2023.   

Markvisst er áfram unnið að stefnumótunarverkefnum sem styðja við vöxt, aukna rekstrarhagkvæmni, sterkari ásýnd og þróun fyrirtækjamenningar. Félagið býr yfir verulegum vaxtartækifærum með betri nýtingu á öflugu, alþjóðlegu sölu- og birgjaneti og hæfileikaríku starfsfólki. 

Í vikunni fagnar félagið jafnframt 10 ára afmæli skráningar sinnar á Nasdaq First North Iceland, sem markar mikilvægan áfanga í þróun og uppbyggingu félagsins. 

Mikill vöxtur hefur verið í  laxeldi hér á landi, sem er  jákvæð þróun. Félagið hefur hafið sölu og markaðssetningu á íslenskum laxi í gegnum dreifikerfi sitt, með það að markmiði að efla starfsemina enn frekar. Uppbygging greinarinnar skapar tækifæri til nánara samstarfs við íslensk eldisfyrirtæki og til að nýta sterkt sölunet félagsins til að kynna og aðgreina íslenskan lax á lykilmörkuðum. 

Annað mikilvægt atriði er að halda áfram því frábæra samstarfi sem við höfum átt við framleiðendur og styrkja það enn frekar.  Það er eina leiðin til að viðhalda stöðu okkar og verja stöðu vörumerkisins Íslands úti á mörkuðum og þar er þorskurinn sérstaklega mikilvægur.  Þar stefnum við að því að vera leiðandi í samstarfi við íslenska framleiðendur.  

Ég vil þakka framleiðendum og viðskiptavinum fyrir traustan stuðning og góða samvinnu, sem hefur verið lykilforsenda þess árangurs sem náðst hefur, fyrir alla aðila. 

Markmiðið er að halda ótrauð áfram á þessari braut og leita stöðugt leiða til að styrkja Iceland Seafood enn frekar, þannig að félagið sé vel í stakk búið til að mæta framtíðaráskorunum og nýta þau tækifæri sem fram undan eru, til hagsbóta fyrir félagið, eigendur þess og starfsfólk og síðast en ekki síst birgja og viðskiptavini.” 

Fjárfestafundir

Iceland Seafood mun ekki halda fjárfestafundi fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung. Fyrirtækið fagnar öllum fyrirspurnum um fjárhagslegar niðurstöður fjórðungsins, og má senda spurningar á netfangið  investors@icelandseafood.com

Fyrirtækið mun halda fjárfestafundi í kjölfar annars ársfjórðungs (hálfsársniðurstöður) og fjórða ársfjórðungs (árslokaniðurstöður), þar sem stjórnendur kynna og ræða helstu niðurstöður. Dagsetningar fyrir þá fundi má finna á vefsíðu félagsins www.icelandseafood.com/investors/shareholders/

Fyrirtækið býður alla velkomna í heimsókn sem vilja fræðast meira um starfsemina og annað henni tengt.  Sé áhugi fyrir hendi, vinsamlegast hafið samband við Ægi Pál Friðbertsson apf@icelandseafood.com eða Öldu Björk Óskarsdóttir alda@icelandseafood.com

Fyrirvari

Allar yfirlýsingar varðandi framtíðarsýn í þessari tilkynningu endurspegla núverandi skoðanir stjórnenda á framtíðarviðburðum og niðurstöðu. Það að þessar skoðanir séu byggðar á afstöðu sem stjórnendur telja eðlilegar, er engin trygging fyrir því að atburðir og skoðanir verði að veruleika. Framtíðarsýn felur eðlilega í sér óvissu og áhættu;  Niðurstöður geta verið frábrugðnar fullyrðingum eða skoðunum sem settar eru fram. 

Frekari upplýsingar:

Iceland Seafood International hf.                                                           
http://www.icelandseafood.com/Investors

Ægir Páll Friðbertsson, apf@icelandseafood.com

Attachments

Subscribe to releases from GlobeNewswire by notified

Subscribe to all the latest releases from GlobeNewswire by notified by registering your e-mail address below. You can unsubscribe at any time.

Latest releases from GlobeNewswire by notified

Iveco Group signs a 150 million euro term loan facility with Cassa Depositi e Prestiti to support investments in research, development and innovation11.6.2024 12:00:00 CEST | Press release

Turin, 11th June 2024. Iveco Group N.V. (EXM: IVG), a global automotive leader active in the Commercial & Specialty Vehicles, Powertrain and related Financial Services arenas, has successfully signed a term loan facility of 150 million euros with Cassa Depositi e Prestiti (CDP), for the creation of new projects in Italy dedicated to research, development and innovation. In detail, through the resources made available by CDP, Iveco Group will develop innovative technologies and architectures in the field of electric propulsion and further develop solutions for autonomous driving, digitalisation and vehicle connectivity aimed at increasing efficiency, safety, driving comfort and productivity. The financed investments, which will have a 5-year amortising profile, will be made by Iveco Group in Italy by the end of 2025. Iveco Group N.V. (EXM: IVG) is the home of unique people and brands that power your business and mission to advance a more sustainable society. The eight brands are each a

DSV, 1115 - SHARE BUYBACK IN DSV A/S11.6.2024 11:22:17 CEST | Press release

Company Announcement No. 1115 On 24 April 2024, we initiated a share buyback programme, as described in Company Announcement No. 1104. According to the programme, the company will in the period from 24 April 2024 until 23 July 2024 purchase own shares up to a maximum value of DKK 1,000 million, and no more than 1,700,000 shares, corresponding to 0.79% of the share capital at commencement of the programme. The programme has been implemented in accordance with Regulation No. 596/2014 of the European Parliament and Council of 16 April 2014 (“MAR”) (save for the rules on share buyback programmes set out in MAR article 5) and the Commission Delegated Regulation (EU) 2016/1052, also referred to as the Safe Harbour rules. Trading dayNumber of shares bought backAverage transaction priceAmount DKKAccumulated trading for days 1-25478,1001,023.01489,100,86026:3 June 20247,0001,050.597,354,13027:4 June 20245,0001,055.705,278,50028:6 June20243,0001,096.273,288,81029:7 June 20244,0001,106.174,424,68

Landsbankinn hf.: Offering of covered bonds11.6.2024 11:16:36 CEST | Press release

Landsbankinn will offer covered bonds for sale via auction held on Thursday 13 June at 15:00. An inflation-linked series, LBANK CBI 30, will be offered for sale. In connection with the auction, a covered bond exchange offering will take place, where holders of the inflation-linked series LBANK CBI 24 can sell the covered bonds in the series against covered bonds bought in the above-mentioned auction. The clean price of the bonds is predefined at 99,594. Expected settlement date is 20 June 2024. Covered bonds issued by Landsbankinn are rated A+ with stable outlook by S&P Global Ratings. Landsbankinn Capital Markets will manage the auction. For further information, please call +354 410 7330 or email verdbrefamidlun@landsbankinn.is.

Relay42 unlocks customer intelligence with a new insights and reporting module, powered by Amazon QuickSight11.6.2024 11:00:00 CEST | Press release

AMSTERDAM, June 11, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- Relay42, a leading European Customer Data Platform (CDP), is leveraging Amazon QuickSight to power its new real-time customer intelligence, reporting, and dashboard module. Harnessing the breadth and quality of customer data, the new Insights module empowers marketing teams to dive deep into customer behaviors and gain invaluable insights into the performance of their marketing programs across all online, offline, paid, and owned marketing channels. Preview of the Relay42 Insights module, in pre-beta version Key capabilities of the Relay42 Insights module include: Deep insights into customer behaviors: With the Relay42 Insights module, marketers can ask unlimited questions about their data and gain a deeper understanding of how to serve their customers more effectively. Simplicity with AI-powered querying: Marketers can use artificial intelligence to query their data using natural language search, reducing the reliance on data scientists. Us

Metasphere Labs Announces X Spaces Event on the Topic of Green Bitcoin Mining and Sound Money for Sustainability11.6.2024 10:30:00 CEST | Press release

VANCOUVER, British Columbia, June 11, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- Metasphere Labs Inc. (formerly Looking Glass Labs Ltd., "Metasphere Labs" or the "Company") (Cboe Canada: LABZ) (OTC: LABZF) (FRA: H1N) is thrilled to announce an engaging Twitter Spaces event on Green Bitcoin mining, energy markets, and sustainability on July 3, 2024 at 2 p.m. ET. Follow us on X at MetasphereLabs for updates and to join the event. What We'll Discuss Bitcoin Mining Basics: Understand the fundamentals of Bitcoin mining.Energy Market Dynamics: Explore how Bitcoin mining interacts with energy markets.Sustainable Innovations: Learn about our efforts to promote sustainability in Bitcoin mining.Sound Money: Discover how tamper-proof currency can enhance stability.Efficient Payment Rails: See how fast, neutral payment systems support humanitarian projects.Carbon Footprint: Compare Bitcoin's environmental impact with traditional banking. "We're excited to host this event and dive into the critical topics of Bitcoin

World GlobeA line styled icon from Orion Icon Library.HiddenA line styled icon from Orion Icon Library.Eye