
Iceland Seafood International hf: Samstæðureikningur ársins 2025
26.2.2026 16:45:00 CET | GlobeNewswire by notified | Press release
Hagnaður yfir afkomuspá ársins. Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi árið 2025 var 1,5 milljarður króna
- Rekstrartekjur samstæðunnar námu rúmlega 70,1 milljarði ISK (€484.3m) fyrir árið 2025 sem er 9% aukning frá 2024
- Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi 2025 námu 19,8 milljörðum ISK: (€136.7m), sem er aukning um 6% frá sama ársfjórðungi 2024
- Framlegð 2025 var 7,3 milljarðar (€50.7m) hækkar um 799 milljónir ISK milli ára (€5.5m)
- EBITDA fyrir árið 2025 er 3,3 milljarðar ISK (€22.8m), en var 2,6 milljarður ISK (€18.0m) á árinu 2024
- Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi er 1,5 milljarður ISK (€10.6m) samanborinn við 1,1 milljarð ISK (€7.4m) 2024 sem er aukning um 457 milljónir ISK (€3.2m)
- Hagnaður ársins eftir skatta er 1,1 milljarður ISK (€7.4m) samanborinn við 402 milljóna ISK hagnað (€2.8m) 2024
- Hagnaður á hlut fyrir árið 2025 er 0,33 ISK en 2024 var hagnaður á hlut 0,13 ISK
- Heildareignir námu 41 milljarði ISK (€279.4m), hækkun um 3,7 milljarða ISK (€25.5m) frá ársbyrjun
- Eiginfjárhlutfall lækkaði í 29,5% frá 30% í lok árs 2024
- Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi 2026 verður samkvæmt afkomuspá 1,7 - 2,0 milljarðar ISK (€11.5m - €13.5m)
Rekstrartekjur starfseminnar í Suður-Evrópu voru 8,7 milljarður ISK (€60.3m) á fjórða ársfjórðungi, sem er 1,2% lækkun miðað við sama tímabil árið 2024. Heildarsala ársins nam 30,8 milljörðum ISK (€212.9m) og var 1% lægri í verðmæti og dróst saman um 2% í magni miðað við fyrra ár. Hagnaður af fyrir skatta nam 1,2 milljarði ISK (€8.2m), sem er aukning um 349 milljónir ISK (€2.4m) frá árinu 2024. Sala Iberica Group lækkaði um 1% í virði og 2% í magni. Ahumados skilaði góðum rekstrarárangri árið 2025, sala jókst um 1% í virði og magn jókst um 4%. Þetta var besta ár fyrirtækisins frá því það var keypt árið 2021 og nam hagnaður fyrir skatta 350 milljónum ISK (€2.4m).
Rekstrartekjur starfseminnar í Norður-Evrópu voru 3 milljarðar ISK (€20.6m) á fjórðungnum, sem er 20% aukning frá fjórða ársfjórðungi í fyrra. Heildarsala ársins 2025 jókst um 11% og nam 9,2 milljörðum ISK (€63.3m), frá 8,2 milljarði ISK (€56.8m) árið 2024. Lægri laxaverð árið 2025 höfðu jákvæð áhrif á reksturinn, á meðan hátt verð á hvítfiski skapaði áskoranir og hafði gagnstæð áhrif bæði á sölu og rekstrarafkomu. Hagnaður starfseminnar fyrir skatta á fjórða ársfjórðungi nam 149 milljónum ISK (€1m) samanborið við 262 milljónir ISK (€1.8m) á fjórða ársfjórðungi 2024. Hagnaður ársins 2025 fyrir skatta var 347 milljónir ISK (€2.4m), samanborið við tæpar 364 milljónir ISK (€2.5m) árið 2024.
Rekstrartekjur sölu- og dreifingarhluta starfseminnar voru 8,6 milljarðar ISK (€59.7m) á fjórða ársfjórðungi, sem er 11% aukning frá sama ársfjórðungi 2024. Heildarsala ársins 2025 nam 32 milljörðum ISK (€221.5m), sem er 22% aukning samanborið við 26,2 milljarða ISK (€181m) árið 2024. Hagnaður starfseminnar fyrir skatta á fjórða ársfjórðungi nam 185 milljónum ISK (€1.3m) samanborið við 221 milljónir ISK (€1.5m) á fjórða ársfjórðungi 2024. Hagnaður ársins 2025 fyrir skatta var 641 milljónir ISK (€4.4m), samanborið við 558 milljónir ISK (€3.9m) árið 2024. Árið einkenndist af háum verðum og mikilli eftirspurn eftir þorskafurðum, makrílverð voru mjög há á árinu ásamt hækkandi verði á flest öllum hvítfisktegundum. Framboð af loðnu var nánast ekki neitt. Samdráttur í þorskkvóta og tollamál í Bandaríkjunum juku enn á óvissu á þeim markaði. Þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi skilaði íslenska einingin góðri niðurstöðu og er þar að þakka nánu samstarfi við íslenska framleiðendur.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir skatta var yfir afkomuspá og fyrra ári. Upphafleg afkomuspá fyrir árið var að hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta yrði á bilinu 1,1 - 1,4 milljarðar ISK (€7.5m - €9.5m) en niðurstaða ársins er 1,5 milljarður ISK (€10.6m). Áfram er gert ráð fyrir að þorsksverð haldist hátt, á meðan meiri óvissa ríkir um laxaverð. Þó er búist við að það fylgi sínu hefðbundna mynstri þ.e.a.s. hækkun snemma árs, lækkun síðar á árinu og svo aftur hækkun þegar líður að árslokum. Allar starfseiningar Iceland Seafood skiluðu góðum árangri á árinu og jákvæðri rekstrarafkomu.
Ægir Páll Friðbertsson, CEO
„Árið 2025 var öflugt rekstrarár fyrir Iceland Seafood og byggði ofan á þann viðsnúning sem náðist árið á undan. Allar starfseiningar samstæðunnar skiluðu góðri afkomu á árinu, þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi, sem undirstrikar seiglu og samkeppnishæfni starfseminnar. Þessi árangur styrkir þá trú mína að fram undan séu tækifæri sem munu nýtast félaginu vel til framtíðar.
Á árinu 2025 sáum við hækkandi verð á þorski, skyldum tegundum og makríl, samhliða stöðugri eftirspurn á mikilvægum mörkuðum okkar. Verð á laxi var aftur á móti lægra og stöðugra en á fyrra ári og var það jákvætt fyrir laxatengda starfsemi okkar. Verðbólga lækkaði í EU, en hækkaði lítillega í Bretlandi og Bandaríkjunum, á sama tíma og vextir fóru lækkandi í nokkrum helstu viðskiptalöndum. Þessir þættir höfðu að jafnaði jákvæð áhrif á kaupmátt á árinu. Fjórði ársfjórðungur var sérstaklega sterkur og í samræmi við árstíðasveiflur, þar sem sala jókst frá sama tímabili árið áður. Góð sala í jólavertíð á Írlandi og á Spáni, ásamt mjög góðri frammistöðu í frystum og ferskum vörum frá S&D, átti þar stóran þátt.
Aukin eftirspurn eftir hvítfiskafurðum og hækkandi verð á árinu skýrist af minni úthlutun þorskkvóta í Barentshafi fyrir árið 2025 og viðskiptabanni á rússneskan fisk. Það er mat okkar að eftirspurn verði áfram mikil árið 2026 og til lengri tíma. Allar líkur eru á að verð muni haldast áfram hátt komi ekki til aukningar á framboði.
Eitt af stóru skrefum ársins var vel heppnuð endurfjármögnun móðurfélagsins ISI hf., sem styrkir fjárhagsstöðu, dregur verulega úr endurfjármögnunaráhættu og lækkar vaxtakostnað félagsins á komandi árum.
Þá fjárfesti félagið í frystitogararekstri í Argentínu á árinu. Þetta styrkir stöðu okkur innan virðiskeðjunnar, þar sem við erum með veiðar og vinnslu á einni hendi. Fjárfestingin gerir okkur einnig kleift að auka framboð og vöruúrval af hágæða villtri rækju til núverandi og nýrra viðskiptavina.
Vöxtur íslensks laxeldis er einnig jákvæð þróun og við höfum hafið sölu og markaðssetningu íslensks lax í gegnum okkar dreifikerfi, með það að markmiði að efla starfsemina enn frekar. Uppbygging íslensks laxeldis skapar tækifæri fyrir félagið í því að vinna þétt með íslenskum eldisfyrirtækjum og beita okkar öfluga söluneti til að kynna íslenskan lax á lykilmörkuðum og aðgreina hann á markaðnum.
Á árinu 2025 náðum við með samhentu átaki öflugra starfsmanna, traustra birgja og viðskiptavina að bæta og styrkja rekstur núverandi rekstrareininga. Það er gott veganesti inn í framtíðina og staðfestir að skýrar stefnumarkandi ákvarðanir eru að skila jákvæðum árangri fyrir félagið.“
Rafrænn fjárfestafundur
Í dag klukkan 16:30 GMT mun félagið halda netfund fyrir fjárfesta og markaðsaðila þar sem stjórnendur munu kynna og ræða niðurstöður fjórða ársfjórðungs 2025 og ársins í heild.
Fundurinn er eingöngu á netinu og verður í beinni útsendingu á íslensku á vefsíðum okkar.
www.icelandseafood.com og www.icelandseafood.is
Sjá hlekk að neðan:
https://vimeo.com/event/5738225/embed/b43890b97c/interaction
og verður upptaka aðgengileg eftir fundinn á www.icelandseafood.com/investors.
Þátttakendur á fundinum geta sent skriflegar fyrirspurnir fyrir og á meðan á fundinum stendur á póstfangið investors@icelandseafood.com
Fyrirvari
Allar yfirlýsingar varðandi framtíðarsýn í þessari tilkynningu endurspegla núverandi skoðanir stjórnenda á framtíðarviðburðum og niðurstöðu. Það að þessar skoðanir séu byggðar á afstöðu sem stjórnendur telja eðlilegar, er engin trygging fyrir því að atburðir og skoðanir verði að veruleika. Framtíðarsýn felur eðlilega í sér óvissu og áhættu. Niðurstöður geta verið frábrugðnar fullyrðingum eða skoðunum sem settar eru fram.
Frekari upplýsingar:
Iceland Seafood International hf.
http://www.icelandseafood.com/Investors
Ægir Páll Friðbertsson, apf@icelandseafood.com
Attachments
Subscribe to releases from GlobeNewswire by notified
Subscribe to all the latest releases from GlobeNewswire by notified by registering your e-mail address below. You can unsubscribe at any time.
Latest releases from GlobeNewswire by notified
Iveco Group signs a 150 million euro term loan facility with Cassa Depositi e Prestiti to support investments in research, development and innovation11.6.2024 12:00:00 CEST | Press release
Turin, 11th June 2024. Iveco Group N.V. (EXM: IVG), a global automotive leader active in the Commercial & Specialty Vehicles, Powertrain and related Financial Services arenas, has successfully signed a term loan facility of 150 million euros with Cassa Depositi e Prestiti (CDP), for the creation of new projects in Italy dedicated to research, development and innovation. In detail, through the resources made available by CDP, Iveco Group will develop innovative technologies and architectures in the field of electric propulsion and further develop solutions for autonomous driving, digitalisation and vehicle connectivity aimed at increasing efficiency, safety, driving comfort and productivity. The financed investments, which will have a 5-year amortising profile, will be made by Iveco Group in Italy by the end of 2025. Iveco Group N.V. (EXM: IVG) is the home of unique people and brands that power your business and mission to advance a more sustainable society. The eight brands are each a
DSV, 1115 - SHARE BUYBACK IN DSV A/S11.6.2024 11:22:17 CEST | Press release
Company Announcement No. 1115 On 24 April 2024, we initiated a share buyback programme, as described in Company Announcement No. 1104. According to the programme, the company will in the period from 24 April 2024 until 23 July 2024 purchase own shares up to a maximum value of DKK 1,000 million, and no more than 1,700,000 shares, corresponding to 0.79% of the share capital at commencement of the programme. The programme has been implemented in accordance with Regulation No. 596/2014 of the European Parliament and Council of 16 April 2014 (“MAR”) (save for the rules on share buyback programmes set out in MAR article 5) and the Commission Delegated Regulation (EU) 2016/1052, also referred to as the Safe Harbour rules. Trading dayNumber of shares bought backAverage transaction priceAmount DKKAccumulated trading for days 1-25478,1001,023.01489,100,86026:3 June 20247,0001,050.597,354,13027:4 June 20245,0001,055.705,278,50028:6 June20243,0001,096.273,288,81029:7 June 20244,0001,106.174,424,68
Landsbankinn hf.: Offering of covered bonds11.6.2024 11:16:36 CEST | Press release
Landsbankinn will offer covered bonds for sale via auction held on Thursday 13 June at 15:00. An inflation-linked series, LBANK CBI 30, will be offered for sale. In connection with the auction, a covered bond exchange offering will take place, where holders of the inflation-linked series LBANK CBI 24 can sell the covered bonds in the series against covered bonds bought in the above-mentioned auction. The clean price of the bonds is predefined at 99,594. Expected settlement date is 20 June 2024. Covered bonds issued by Landsbankinn are rated A+ with stable outlook by S&P Global Ratings. Landsbankinn Capital Markets will manage the auction. For further information, please call +354 410 7330 or email verdbrefamidlun@landsbankinn.is.
Relay42 unlocks customer intelligence with a new insights and reporting module, powered by Amazon QuickSight11.6.2024 11:00:00 CEST | Press release
AMSTERDAM, June 11, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- Relay42, a leading European Customer Data Platform (CDP), is leveraging Amazon QuickSight to power its new real-time customer intelligence, reporting, and dashboard module. Harnessing the breadth and quality of customer data, the new Insights module empowers marketing teams to dive deep into customer behaviors and gain invaluable insights into the performance of their marketing programs across all online, offline, paid, and owned marketing channels. Preview of the Relay42 Insights module, in pre-beta version Key capabilities of the Relay42 Insights module include: Deep insights into customer behaviors: With the Relay42 Insights module, marketers can ask unlimited questions about their data and gain a deeper understanding of how to serve their customers more effectively. Simplicity with AI-powered querying: Marketers can use artificial intelligence to query their data using natural language search, reducing the reliance on data scientists. Us
Metasphere Labs Announces X Spaces Event on the Topic of Green Bitcoin Mining and Sound Money for Sustainability11.6.2024 10:30:00 CEST | Press release
VANCOUVER, British Columbia, June 11, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- Metasphere Labs Inc. (formerly Looking Glass Labs Ltd., "Metasphere Labs" or the "Company") (Cboe Canada: LABZ) (OTC: LABZF) (FRA: H1N) is thrilled to announce an engaging Twitter Spaces event on Green Bitcoin mining, energy markets, and sustainability on July 3, 2024 at 2 p.m. ET. Follow us on X at MetasphereLabs for updates and to join the event. What We'll Discuss Bitcoin Mining Basics: Understand the fundamentals of Bitcoin mining.Energy Market Dynamics: Explore how Bitcoin mining interacts with energy markets.Sustainable Innovations: Learn about our efforts to promote sustainability in Bitcoin mining.Sound Money: Discover how tamper-proof currency can enhance stability.Efficient Payment Rails: See how fast, neutral payment systems support humanitarian projects.Carbon Footprint: Compare Bitcoin's environmental impact with traditional banking. "We're excited to host this event and dive into the critical topics of Bitcoin